Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, skora á olíufélagið Skeljung að skammast sín fyrir ósvífnar hótanir sínar í garð Kópavogsbæjar. Af bréfi því sem fyrirtækið sendi bænum, vegna úthlutunar lóðar til Atlansolíu í grennd við stöð Skeljungs, má ráða að ekkert hafi verið að marka afsökunarbeiðnir þær sem fyrirtækið sendi út í kjölfar afhjúpunar á samsæri þeirra gegn neytendum sem talið er að hafi numið að minnsta kosti 40 milljörðum króna.

Óskammfeilnin sem birtist í framkomu Skeljungs hefur reitt Unga jafnaðarmenn til reiðisegir í tilkynningu þeirra.. Hallærislegur fyrirsláttur Skeljungs og vísun í meintan áhuga sinn á umferðaröryggi gerir einungis illt verra og fyrirtækið hlýtur að sjá sóma sinn í draga bréf sitt tilbaka og skammast sín loks ærlega og rækilega, enda hafi hugur auðsýnilega ekki fylgt máli á sínum tíma.

Lóðir undir bensínstöðvar eru takmörkuð gæði og er það ein ástæða þess hve vöxtur nýrra olíufélaga hefur verið hægur. Nú þegar að Atlansolíu hefur
verið úthlutað lóð við hlið Skeljungs ætti samkeppnin loksins að fara að
skila sér almennilega til neytenda enda munu þá fleiri eiga gott með að
nálgast bensín þar sem það er ódýrast. Ungir jafnaðarmenn fagna ákvörðun
Kópavogsbæjar og hvetja önnur sveitafélög til að fylgja fordæmi bæjarins og hraða skipulagi og úthlutun á lóðum til nýrra aðila á bensínmarkaði.

Undir þetta skrifa "Framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna"