Í gær hélt Reykjavíkurborg skuldabréfaútboð og bárust tilboð í skuldabréfin uppá 400 milljónir á bilinu 6,8 - 7,25%. Tekið var tilboðum að nafnvirði 260 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 6,9%, svo heildarstærð skuldabréfaflokksins RVKN 35 1, fór uppí 3,16 milljarða að nafnvirði. Fyrir var hann 2,9 milljarðar króna.