Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. - 2. sætið á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta en Skúli mun kynna framboð sitt í Keflavík á morgun þar sem hann mun gera grein fyrir ástæðum framboðsins og megin stefnumálum.