Hagnaður sælgætisrisans Cadbury jókst um 28% á fyrri helmingi ársins, samanborið við fyrri helming ársins 2007, og nam 143 milljónum punda (tæpir 18 milljarðar íslenskra króna).

Sala jókst á vörum fyrirtækisins. Sala á Trident tyggjói jókst um 12% og á súkkulaðinu Cadbury Dairy Milk, sem er flaggskip vörulínu Cadbury, um 9%.

Til stendur að hagræða í rekstri hjá fyrirtækinu til að vinna upp 6% verðhækkun hráefna. Fyrirtækið ætlar sér að halda áfram að skila hagnaði út árið þrátt fyrir erfiðar aðstæður á mörkuðum, að því er kemur fram í tilkynningu frá því.

Þetta kemur fram í frétt BBC.