Vfit einkaþjálfarinn metur líkamsástand og úthald, býr til æfingatíma og sýnir notandanum í mynd og hljóði hvernig á að fara að. Nýir æfingapakkar eru gefnir út með reglulegu millibili og hlaðast þeir sjálfkrafa inní forritið um leið og þeir hafa verið gefnir út.

Í tilkynningu frá Snjóhúsum segir að Vfit einkaþjálfarinn henti einkar vel heima við eða á ferðalagi og geri ekki ráð fyrir að notandinn eigi nein tæki eða tól til að þjálfa sig með. Venjuleg æfing í vfit tekur aðeins 10 mínútur, en hægt er að lengja tímann upp í allt að 60 mínútur.

Hér má lesa meira um Vfit einkaþjálfarann