Sóley Tómasdóttir (Mynd: DV)
Sóley Tómasdóttir (Mynd: DV)
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

„Alla jafna hreyfi ég mig talsvert mikið,“ segir Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, spurð út í líkamsræktina og helstu hreyfingu sína.

„Ég tek tarnir, einn daginn er það hlaup, svo er það ræktin og svo annað tímabil þar sem ég hjóla og alltaf er ég að stefna á Ólympíuleikana í viðkomandi íþróttagrein,“ segir Sóley hlæjandi. Svo endist þetta í nokkra mánuði. ,,En ég hef undanfarin ár alltaf haldið mér í einhvers konar íþróttum, nema í kosningabaráttunni, þá gafst ég aðeins upp.“

Hún segir hlaupasvæði úti almennt æðisleg í Reykjavík.