Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur ákveðið að setja Tryggingamiðstöðina hf., og dótturfélag þess, Nemi Forsikring ASA í Noregi, á athugunarlista sem gæti leitt til lækkunar á núverandi matseinkunn sem er BBB.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Þar kemur fram að megin ástæða þess að matsfyrirtækið grípur til þessarar ráðstöfunar er skuldastaða FL Group sem er móðurfélag Tryggingarmiðstöðvarinnar.
Í tilkynningu Standard & Poor's kemur fram að óvissa varðandi getu FL Group til að standa við lánaskuldbindingar geti haft áhrif á fjárhagslegan styrk TM og Nemi. Standard & Poor's reiknar með ljúka athugun sinni fyrir lok júní eftir að búið er að fara yfir málið með stjórnendum FL Group og TM.
Athugunin gæti leitt til þess að TM og Nemi yrðu lækkuð í matseinkunn um eitt eða fleiri þrep.