Hagstofa Íslands gerir ráð fyrir því að hagvöxtur á Íslandi nemi 4,8% prósent. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands . Þar er gert ráð fyrir að einkaneyslu aukist um 7,1%, fjárfesting um 21,7% og samneysla 1,8%.

Árið 2017 er spáð að hagvöxtur verði 4,4% en þá gerir Hagstofan ráð fyrir því að einkaneysla aukist um 5,7%, fjárfesting um 7,4% og samneysla um 0,9%.

Neysla og fjárfesting standa að baki hagvexti áranna 2016 og 2017 og hafa verið á mjög örum vexti.

„Vöxtur neyslu, fjárfestingar og ferðaþjónustu er nú talinn verða meiri en áður var spáð. Við þessar sviptingar verður framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar nei­kvætt framan af en þó verður viðskiptajöfnuður jákvæður allan spátímann.

Gert er ráð fyrir að verðbólga aukist seinna en áður var spáð vegna mikillar gengisstyrkingar á síðustu mánuðum. Nú er gert ráð fyrir vaxandi verðbólgu árin 2017 og 2018 en að úr henni dragi eftir það.

Ekkert lát er á mikilli styrkingu vinnumarkaðar en búist er við að dragi úr hraða atvinnuaukningar eftir 2017. Laun og kaupmáttur hafa hækkað mikið undanfarin misseri og er óvissa um launaþróun með minna móti næstu tvö ár ef forsendur kjarasamninga standast,“ segir í frétt Hagstofunnar.