Spron [ SPRON ] hefur tekið víkjandi lán fyrir fimm milljarða króna frá Kaupþingi. Lántakan er til tíu ára.

Tilgangurinn með lántökunni er að renna enn styrkari stoðum undir eiginfjárgrunn félagsins, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar kemur ekki fram hver kjörin eru.

Kaupþing á 4,6% hlut í Spron, samkvæmt hluthafaskrá.