Staða markaðsskuldabréfa í lok júlí 2009 nam 1.514,2 milljörðum króna og lækkaði um 28,8 milljarða í mánuðinum, samanborið við lækkun upp á 14,1 milljarð í mánuðinum á undan.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.

Skáð bréf atvinnufyrirtækja lækkuðu mest í mánuðinum eða um 30 milljörðum króna og nam staða þeirra í lok júlí um 253,3 milljörðum. Staða ríkisbréfa nam 280,7 milljörðum króna í lok júlí, samanborið við 158,4 milljarða í sama mánuði árið áður.