Jenný Guðrún Jónsdóttir, starfsmaður Arion banka, er í fyrsta sæti í spurningaleiknum Quiz Up í þeim flokki þar sem spurt er út í Formúlu 1-kappaksturinn.

Það er leikjafyrirtækið Plain Vanilla sem hannaði spurningaleikinn. Hann fór í loftið á fimmtudag í síðustu viku og varð hann strax einn af vinsælustu leikjunum í App Store-netverslun Apple. Rúmlega hálf milljón manna um heim allan hafa nú náð í Quiz Up-appið sem er fyrir iPhone-síma, iPad-spjaldtölvur og aðrar nettengjanlegar græjur frá Apple.

Auk Jenný er nokkur fjöldi annarra Íslendinga í efstu sætum í nokkrum öðrum flokkum.

Jenný vildi ekki tjá sig um málið þegar Viðskiptablaðið leitaði eftir viðbrögðum hennar í dag. Hún sagðist þó fylgjast grannt með keppnum í Formúlunni.