Fyrrum verðbréfamiðlarar Straums fjárfestingarbanka, þeir Bjarni Eyvinds Þrastarson, Ragnar Páll Dyer, Dr. Sigurður Hannesson og Styrmir Guðmundsson starfa nú allir hjá MP banka.

Bjarni var nýverið ráðinn framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá MP banka. Hann hóf störf hjá MP banka árið 2004 en átti stutta viðkomu í Straumi frá 2008 og þar til bankinn fór í þrot.

Þá hóf hann aftur störf hjá MP banka. Samstarfsfélagar hans, Ragnar, Sigurður og Styrmir, starfa aftur á móti hjá MP sjóðum og Sigurður er framkvæmdastjóri sjóðanna.