Allar líkur eru á því að verslun Office 1 keðjunnar opni á Ísafirði innan tíðar. Þetta kemur fram í frétt á vef Bæjarins besta á Ísafirði. Þar er haft eftir Fjölvari Darra Rafnssyni, framkvæmdastjóra Office 1, að til standi að opna verslun vestra, en ekki ljóst nákvæmlega hvenær það verður. Verslunin verður í Neistahúsinu á Ísafirði, í einu verslunarhólfi á jarðhæð hússins.

Verslanir Office 1 selja ritföng, rekstrar- og skrifstofuvörur fyrir fyrirtæki, heimili og skóla. Þá hefur fyrirtækið vakið athygli fyrir að selja erlend tímarit á talsvert lægra verði en gengur og gerist.