Steingrímur J. Sigfússon var í morgun endurkjörinn formaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs með lófaklappi. Engin mótframboð bárust. Þá var Katrín Jakobsdóttir endurkjörin sem varaformaður flokksins og Sóley Tómasdóttir var kjörin ritari.

Þar bárust heldur engin mótframboð og voru þær kjörnar með lófaklappi.

Hildur Traustadóttir var kjörin nýr gjaldkeri flokksins.

Landsfundur Vinstri grænna stendur yfir um helgina.