Norræna lággjaldaflugfélagið Sterling Airlines hefur gert samstarfssamning við danska flugfélagið Danish Air Transport (DAT), samkvæmt fréttum í dönskum fjölmiðlum.

Samningurinn felur í sér að mögulegt er að bóka innanlandsflug í Danmörku á vefsíðu Sterling. Einungis verður hægt að bóka flugfar á milli Kaupmannahafnar og Borgundarhólms til að byrja með. DAT mun þjónusta flugleiðina og kostar miðinn 395 danskar krónur aðra leiðina, eða rúmlega fjögur þúsund íslenskar krónur.

Sterling er í eigu eignarhaldsfélagsins Fons, sem er stjórnað af Pálma Haraldssyni og Jóhannesi Kristinssyni. Mærsk Air rann nýlega inn í Sterling. Fyrirtækið á í yfirtökuviðræðum við FL Group.