Sjóvá tryggingafélag segir rekstur traustan ogað félagið uppfylli öll skilyrði um fjárhagslegan styrk. Segir að stjórnvöld hafi fært mjög sannfærandi rök fyrir ákvörðun sinni um að leggja fé inn í Sjóva. Málið bíður úrskurðar ESA, eftirlitsstofnunar EFTA.

Tilkynning frá Sjóvá:

„Vegna fréttaflutnings af málefnum Sjóvár síðustu daga vill stjórn félagsins koma á framfæri eftirfarandi:

Rekstur Sjóvár er traustur og uppfyllir félagið öll skilyrði um fjárhagslegan styrk.  Sjóvá er fjárhagslega í stakk búin til að mæta öllum skuldbindingum gagnvart viðskiptavinum sínum.

Það mál sem bíður úrskurðar ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, vegna málefna Sjóvár, snýst um það hvort stjórnvöld gátu tekið ákvörðun um að leggja nýju félagi, með sama nafni en með vátryggingastofni gamla félagsins, til fjármagn og hvort sú ákvörðun hafi verið tekin á réttmætan hátt. Niðurstaða liggur ekki fyrir.

Stjórnvöld hafa fært mjög sannfærandi rök fyrir ákvörðun sinni, enda talið hana mun betri kost en láta félagið fara í þrot.

Viðskiptavinir Sjóvár hafa enga ástæðu til að óttast um stöðu sína og þá tryggingavernd sem félagið bíður þeim. Fjárhagsstaða félagsins er traust og gerir því kleift að standa fyllilega við allar skuldbindingar gagnvart viðskiptavinum óháð því hver niðurstaða ESA verður.  Sjóvá lýtur eftirliti Fjármálaeftirlitsins og  uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru til félagsins.“