Síðastliðinn föstudag var haldinn aðalfundur Félags löggiltra endurskoðenda á Grand hóteli í Reykjavík þar sem skipuð var ný stjórn auk þess sem að formaður og varaformaður voru valdir. Í stjórninni sitja þau Friðbjörn Björnsson, Auður Þórisdóttir og Arna Guðrún Tryggvadóttir. Formaður var kjörinn Sigurður Páll Hauksson og J. Sturla Jónsson varaformaður. Stjórnin er því óbreytt frá fyrra ári.

Í tilkynningu frá félaginu segir að á síðasta ári varð sú nýbreytni að nemar í endurskoðun geta orðið félagar í Félagi löggiltra endurskoðenda og er það í samræmi við þróun sem orðið hefur á Norðurlöndunum.