Rekstur afþreyinga- og fjölmiðlafyrirtækisins 365 [ 365 ] líður fyrir gengisfall krónu, sem nam 28% á fyrsta ársfjórðung, eins og svo mörg íslensk fyrirtæki. Nettó fjármagnsliðir námu 1.180 milljónir króna en þar á meðal var gengistap upp á 940 milljónir króna. En tap fyrirtækisins nam 970 milljónum á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við tap upp á 35 milljónir króna á sama tíma í fyrra.

Salan eykst um 25% frá fyrsta fjórðungi í ár og sama tíma í fyrra og innri vöxtur tekna (pro forma) var 9% frá fyrra ári. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam jókst um 35% frá sama tímabili 2007.

"Rekstur samstæðunnar í heild er ekki langt frá rekstraráætlun þrátt fyrir ákveðna erfiðleika í afþreyingarhlutanum," segir Ari Edwald, forstjóri 365 í fréttatilkynningu. "Þar er fyrst og fremst um að ræða lægð í sölu á erlendri tónlist og DVD myndum, en fyrirtækið vinnur að aukinni dreifingu á þeim vörum. Rekstur fjölmiðla hefur gengið betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Góður innri vöxtur er í tekjum og 35% hækkun EBITDA hagnaðar frá fyrra ári. Fjármagnsliðir sem einkennast af miklu gengisfalli krónunnar, háum vöxtum og verðbólgu, leiða til 970 milljón króna taps. 365 hf var með um 35% af skuldum í erlendri mynt um áramót, og er gengistap félagsins 940 milljónir. 365 hf ver ekki lán fyrir gjaldeyrissveiflum og áætlar ekki áhrif þeirra. Félagið er hins vegar að verulegu leyti varið út þetta ár að því er varðar erlend aðföng til rekstrar. Í heild telja stjórnendur 365 hf að niðurstaða fyrsta ársfjórðungs sé viðunandi og gefi ekki tilefni til að breyta áætlunum ársins," segir hann.