Eins og frægt er orðið stofnaði verslunarkeðjan vöruhús hér á landi 23. maí síðastliðinn sem hefur fengið góðar viðtökur, en fyrirtækið starfar nú í 11 löndum með 736 vöruhús. Jeff Brotman stofnandi og stjórnarformaður fyrirtækisins lést í gærkvöldi 74 ára að aldri.

Brotman stofnaði fyrsta vöruhús fyrirtækisins í Seattle borg í Bandaríkjunum árið 1983, ásamt Jim Sinegal, framkvæmdastjóra fyrirtækisins til ársins 2012.

Brotman var alla tíð mikill stuðningsmaður Demókrataflokksins í Bandaríkjunum og hýsti hann marga frjálslynda forsetaframbjóðendur flokksins á heimili sínu þegar þeir voru að safna fé fyrir framboð sín meðal ríka fólksins.