Straumur-Burðarás hefur ákveðið að breyta um nafn, að því er fram kom í ræðu Björgólfs Thors Björgólfssonar á aðalfundi Straums-Burðaráss í dag. Hafist hefur verið handa við að finna nýtt nafn á fjárfestingarbankann.

?Þá blasir við að nafn okkar ágæta félags, - Straumur-Burðarás, er rammíslenskt og hefur fram að þessu þjónað vel sínum tilgangi, - en að sama skapi er það ólipurt í framburði fyrir útlendinga sem ekki þekkja sérhljóða okkar. Í ljósi stefnumótunar félagsins er nú þegar hafin vinna við nýtt nafn á félaginu og verður það kynnt í fyllingu tímans,? sagði Björgólfur Thor í ræðu sinni.