Straumur hefur í dag lokið fjármögnun á 133 milljónum evra.

Í tilkynningu frá Straumi kemur fram að fjármögnunin bætir lausafjárstöðu bankans og verður nýtt til að endurgreiða sambankalán að upphæð 200 milljónir evra sem gjaldfellur 9. desember næstkomandi.

Gjalddagi þessarar nýju fjármögnunar er 15. maí 2009.

„Straumur telur að í kjölfar þessa geti bankinn haldið áfram að standa við allar sínar fjárhagslegu skuldbindingar,“ segir í tilkynningunni.

„Þessi fjármögnun er mikilvægur áfangi fyrir Straum sérstaklega í ljósi núverandi markaðsaðstæðna,“ segir Willam Fall, forstjóri Straums í tilkynningunni.

„Þetta er ennfremur jákvætt skref fyrir íslenskan fjármálamarkað í ljósi þeirra erfiðleika sem Ísland hefur staðið frammi fyrir undafarna mánuði. Straumur mun, í samræmi við áður yfirlýsta stefnu, halda áfram að byggja upp alhliða fjárfestingabanka ásamt því að draga úr efnahagsreikning sínum og viðhalda fjárhagslegum styrk".