Straumur-Burðarás hefur gengið frá samkomulagi við Baug Group hf. um að selja alla eignarhluti sína í nokkrum óskráðum félögum, þar með talið Magasin Du Nord, Illum, Iceland, Booker og fleiri, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu. Tekið er fram að bankinn muni innleysa um þriggja milljarða hagnað á fyrsta ársfjórðungi 2006.