William Demant Invest, stærsti hluthafi Össurar[ OSSR ], hefur bætt við hlut sinn í Össuri fyrir um 29 milljónir króna, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Gengi viðskiptanna var 98,1.

Samkvæmt hluthafaskrá á danska fjárfestingafélagið William Demant  34,3% hlut í Össuri.

Á sama tíma er tilkynnt um sambærilega sölu hjá Hjörleifi Pálssyni, fjármálastjóra Össurar.

Niels Jacobsen situr í stjórn Össurar fyrir hönd William Demand Invest