Kauphöllin hefur samþykkt töku hluta í Högum til viðskipta á Aðalmarkaði að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár.

Fram kemur í tilkynningu frá Kauphöllinni að samþykkið sé háð því að félagið uppfylli skilyrði Reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutafjár fyrir skráningardag.

Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hluti Haga á markaði verði 15. desember en Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.