smáréttir tapas
smáréttir tapas

Veitingastaðurinn Tapas barinn er á besta stað í bænum og er umlukinn gömlum sjarmerandi húsum.

Staðurinn er í kjallara þannig að þar er alltaf dimmt, og lágt er til lofts en það skapar góða stemningu.

Það er ávallt erill á Tapas barnum, alveg sama hvort staðurinn er heimsóttur í miðri viku eða um helgi. Hávaðinn ágerist þegar líður á kvöldið og oft eru mjög stórir hópar þar í innri sal. Hægt er að velja um fjöldann allan af tapas-réttum eða hefðbundinn matseðil með forrétt, aðalrétt og eftirrétt.

Nánar um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum Tölublöð.