Mikill verðmunur er á milli þeirra námskeiða sem í boði eru fyrir börn í sumar, samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ . Fram kemur í könnun ASÍ að sem dæmi þurfi fjölskylda á höfuðborgarsvæðinu með 10 ára barn sem fer í þrjár vikur á námskeið hálfan daginn og í tvær vikur allan daginn að greiða 41.300 krónur. Það er fyrir utan tíma sem greiða þarf fyrir t.d. gæslu, hressingu og hádegismat.

ASÍ tekur sem dæmi að fjölskylda á á höfuðborgarsvæðinu með 8 ára barn sem fer á tvö 10 daga námskeið hálfan daginn og svo í tvær vikur allan daginn þarf að greiða 54.000 kr. miðað við valið hér að neðan, en það er fyrir utan tíma sem greiða þarf fyrir t.d. gæslu, hressingu og hádegismat.

Þessi kostnaður getur svo margfaldast ef mörg börn eru í fjölskyldunni og ef börnin/barnið er í lengri tíma yfir sumarið í skipulagðri dagskrá. Hér getur því verið um talsverðar upphæðir að ræða sem reynst geta mörgum fjölskyldum þungur baggi.

Krakkar á Boot Camp-námskeiði

Sem dæmi um önnur námskeið sem skoðuð voru má nefna að Boot Camp-námskeið í 5 daga 3 klst. á dag kostar 12.500 kr., 5 daga heilsdagsnámskeið hjá KFUM og KFUK – Reykjanesbæ kostar 8.700 kr. og 5 daga Golfnámskeið 3 klst. á dag hjá Pro Golf og Golfklúbbi Reykjavíkur kostar 15.000 kr.

Skoðuð voru verð á námskeiðum íþróttafélaga, á vegum íþrótta- og tómstundarráða og –nefnda, sveitarfélaga, skátafélaga og frjálsra félagasamtaka. Námskeiðunum í könnuninni er skipt í fjölda námskeiðsdaga og klukkustunda á dag. Víða er boðin gæsla á morgnana áður en námskeiðin hefjast, í hádeginu og eftir að dagskrá námskeiðanna lýkur á daginn. Misjafnt er hvort greiða þarf aukalega fyrir þessa gæslu eða hvort hún er innifalin í námskeiðsgjaldinu, sama er að segja um hádegisverð og hressingu, en sjaldnast er matur innifalinn, en oft er hægt að kaupa heitan mat gegn vægu gjaldi. Það gjald sem gefið er upp í könnuninni er ávallt miðað við eitt stakt námskeið þannig að ekki er tekið tillit til afsláttarverðs t.d. iðkendaafsláttar eða systkinaafsláttar. Við samanburð á verði námskeiða er því nauðsynlegt að hafa þetta í huga.