SVÞ- Samtök verslunar og þjónustu mótmæla stækkun Fríhafnarkomuverslunar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) og stórauknu vöruframboði hennar. Þessi framkvæmd er í algjörri andstöðu við stefnu stjórnarflokkanna og einnig þau skilaboð um fríhafnarverslun, sem ábyrgir aðilar í utanríkisráðuneytinu hafa borið samtökunum og hafa verið rædd í stjórn samtakanna.

Það fer ekki á milli mála að komuverslunin í FLE er á innlendum markaði enda starfar hún þannig. Verðtökufólk verslunarinnar skráir verð í verslunum í Reykjavík og auglýsingum hennar í innlendum auglýsingamiðlum er beint til sama markaðar og innlend verslun þjónar. Um þetta er ekki deilt segir í tilkynningu SVÞ.

Ríkið á og rekur þessa verslun, en sérstök stjórn og framkvæmdastjóri stýra rekstrinum í umboði utanríkisráðuneytis sem fer með málefni flugstöðvarinnar og flugvallarins. Stjórnskipulega er utanríkisráðuneytið eigandi og rekstraraðili stærstu snyrtivöruverslun landsins.

Breytingin sem nú var gerð á komuversluninni felst í auknu húsrými og auknu vöruframboði, einkum snyrtivörum. Þessi verslun er m.a. auglýst í FLE með auglýsingu á gólfi sem komufarþegar fara um þar sem stendur ?Up to 50% lower than city prices". Stór hluti verðmunar er virðisaukaskatturinn og síðan vörugjöld og tollar. Einnig er ljóst að svona stór verslun, sem jafnframt er ríkisverslun, nýtur stærðarinnar og eignarhaldsins við innkaup og nær þannig lágu innkaupsverði sem getur endurspeglast í lágu smásöluverði. Með auglýsingum sínum er Fríhöfnin (=ríkið) að hvetja fólk til að greiða ekki skatta og tolla eins og innlend verslun þarf að standa ríkinu skil á. Þetta er óþolandi samkeppni ríkisins við innlenda verslun og bera tafarlaust að afleggja hana í samræmi við stefnu stjórnarflokkana.

SVÞ ?Samtök verslunar og þjónustu hvetja utanríkisráðuneytið til að hefja nú þegar undirbúning að lokun þessarar komuverslunar og einkavæðingu verslunar sinnar fyrir brottfararfarþega í FLE og álíka flugstöðvum segir í tilkynningu SVÞ.