SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu og Sjóvá hafa undirritað samstarfssamning, segir í fréttatilkynningu.

?Með samningnum mun Sjóvá bjóða þeim fyrirtækjum sem eru aðilar að SVÞ sérkjör á líf- og sjúkdómatryggingum ásamt hóplíftryggingasamningum sem eru sérsniðnir fyrir aðildarfyrirtæki SVÞ," segir í tilkynningunni.

?Markmið SVÞ með samningnum er að auka virði aðildar að samtökunum með því að bjóða aðildarfyrirtækjum með markvissum hætti sérkjör og sérsniðnar lausnir á sviði líf- og sjúkdómatrygginga. Markmið Sjóvá er að bæta þjónustu við viðskiptavini sína með einföldum en sérsniðnum líftryggingalausnum."