Kaupmaðurinn Svava Johansen, sem löngum er kennd við verslunina Sautján, er fimmtug í dag. Hún segir í samtali við Fréttablaðið að hún ætli að eyða afmælisdeginum með sínum heittelskaða, Birni Sveinbjörnssyni, og góðum vinum, í golfi í útlöndum. Hún vill ekki gefa upp hvar að öðru leyti en því að þau verði í sólinni og horfi út á Miðjarðarhafið. Hún stefnir á að halda afmælisveisluna í sumar.

Svava segir að sér líði eins og hún sé enn 25 ára. „Þetta er ótrúleg tala en mér líður vel. Ég er í góðu líkamlegu ástandi, með alla þessa reynslu á bakinu og með gríðarlegan kraft. Mér finnst eins og ég sé með marga orkusteina í hvorri hendi og með meiri orku en áður með alla mína reynslu og visku. Ég er öflugri en nokkru sinni fyrr,“ segir hún.