Um leið og dollar hefur styrkst hefur verð á gullúnsunni lækkað og stendur nú í tæplega 1.153 dollurum. Aftur á móti er verð á kakói það hæsta í 25 ár að því er fram kemur í Financial Times.

Þá hefur olíuverð í framvirkum samningum heldur lækkað eftir helgina og stendur nú í 76,75 dollurum í London og 73,96 dollurum tunna í New York.