Madeleine Svíaprinsessa og Christopher O ' Neill, eiginmaður hennar, eiga von á barni. Sænska konungsfjölskyldan greindi frá þessu í morgun. Þetta er fyrsta barn þeirra hjóna en Madeleine er 31 árs en Christopher er 39. Barnið er væntanlegt í heiminn í mars á næsta ári.

Það ríkir mikil frjósemi hjá kóngafólki í Evrópu um þessar mundir. Skemmst er frá því að segja að hertogahjónin af Cambridge eignuðust barn í sumar. Þá ól Viktoría, systir Madeleine, barn í fyrravor.