Hagnaður Regins fyrstu þrjá mánuði ársins 2014 eftir tekjuskatt nam 397 milljónum króna. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 618 milljónir en rekstrartekjur félagsins á tímabilinu námu 1031 milljónum króna.

Árshlutareikningur var samþykktur af stjórn í dag. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.), fjöldi hluthafa þann 31. mars sl. voru 643.