IP Fjarskipti ehf. (TAL) hafa stefnt Vodafone fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna riftunar Vodafone á fjarskiptsamningum félaganna þann 13. september 2012. Vodafone telur að kröfur TAL séu tilhæfulausar og mun félagið verjast þeim af fullum þunga.

Fram kemur í tilkynningu að engar fjárkröfur eru hafðar uppi í málinu af hálfu Tals og getur Vodafone því ekki lagt mat á möguleg fjárhagsleg áhrif. Viðurkenni dómstólar skaðabótaskyldu Vodafone gæti Tal síðar haft uppi bótakröfu á hendur Vodafone.

Málið er reifað í skráningarlýsingu Vodafone. Þar segir orðrétt:

„Ágreiningur er uppi á milli Fjarskipta og Tals vegna ógreiddra reikninga sem Fjarskipti hafa gefið út á hendur Tali. Forsaga málsins er sú að Tal og Fjarskipti gerðu með sér endursölusamning um að Tal keypti tiltekna fjarskiptaþjónustu af Fjarskiptum í heildsölu. Á árinu 2011 kom upp ágreiningur milli félaganna varðandi reikninga sem Fjarskipti gáfu út á hendur Tali vegna umframgagnamagns, þ.e. kaupa Tals á gagnaflutningi umfram tiltekin mörk, og vegna innsláttar pantana en samkvæmt samningi fyrirtækjanna hafa Fjarskipti umsjón með innslætti pantana vegna viðskiptavina Tals gegn gjaldi.

Á fyrri hluta árs 2012 greiddi Tal hluta af þeim reikningum sem ágreiningur ríkir um en eftir stendur ágreiningur um fimm reikninga vegna ársins 2011. Til viðbótar við þær fjárhæðir sem um ræðir hafa Fjarskipti uppi kröfu á hendur Tali um greiðslu áfallandi dráttarvaxta, innheimtu- og málskostnaðar.

Þann 31. mars 2011 gaf Tal út reikning á hendur Fjarskiptum sem fyrirtækið kveðst byggja á kröfu um endurgreiðslu vegna meintrar ofrukkunar Fjarskipta vegna fastlínuþjónustu í heildsölu. Stjórnendur Fjarskipta telja kröfuna tilhæfulausa.

Fjarskipti undirbúa nú málshöfðun á hendur Tali til greiðslu þeirra fimm krafna frá árinu 2011 sem ágreiningur er um og að framan er lýst. Reikna má með að Tal krefjist sýknu af kröfum Fjarskipta og hafi jafnframt uppi gagnkröfu á hendur Fjarskiptum vegna framangreinds reiknings frá 31. mars 2011.

Það er afstaða Fjarskipta að samkvæmt fyrirliggjandi samningum Fjarskipta og Tals sé greiðsluskylda Tals ótvíræð. Fari ágreiningur Fjarskipta og Tals fyrir dóm er þó ekki hægt að ábyrgjast hver lokaniðurstaða málsins verður. Versta mögulega niðurstaðan fyrir Fjarskipti væri sú að félagið tapaði öllum kröfum sínum á hendur Tali auk þess að vera dæmt til að endurgreiða Tali fyrrnefnda kröfu þeirra. Verði niðurstaðan sú gæti slíkt haft í för með sér neikvæð áhrif á rekstrarhagnað félagsins að fjárhæð 43,2 m.kr.

Besta mögulega niðurstaðan fyrir Fjarskipti væri sú að félaginu væru dæmdar fullar greiðslur úr hendi Tals auk þess sem framangreindri kröfu Tals á hendur Fjarskiptum yrði vísað frá. Í slíku tilviki væru heildaráhrifin á rekstrarhagnað félagsins jákvæð um 109,3 m.kr.“