Teymi hefur keypt eigin bréf fyrir 233 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll Íslands.

Bréfin eru keypt af 365 og er það gert í samræmi við skiptingaráætlun, sem er dagsett 12. september.

Um er að ræða 43.800.000 hluti, keypta á genginu 5,32. Eftir viðskiptin á Teymi 83.800.000 hluti af eigin bréfum.