Nafni auglýsingastofunnar Árnasynir hefur verið breytt í VORAR en nafngiftinni fylgir spáný ásýnd sem vísar í stefnu og framtíðarsýn stofunnar. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Eftir sem áður veitir stofan alhliða þjónustu í auglýsingagerð og markaðssetningu og vinnur áfram í góðri samvinnu við viðskiptavini sína. Samhliða nafnabreytingunni flytur VORAR í nýtt og húsnæði í Kringlunni.

Hrönn Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi VORAR segir breytinguna koma í kjölfar stefnumótunarvinnu sem farið var í:

„Stofan hefur vaxið og dafnað frá því að hún var stofnuð árið 2011 og ýmsar breytingar orðið á þessum 9 árum. Við vildum að nýja nafnið og eins að ásýnd fyrirtækisins væri táknrænt fyrir okkur og þá vinnu sem við innum af hendi. Vorinu fylgir ferskur blær og það eru gróskumiklir tímar framundan. Hjá VORAR blómstra viðskiptavinirnir og markaðsstarfið springur út og því er nýja nafnið alveg kjörið. Að auki vildum við að ásýndin endurspeglaði betur þá staðreynd að 70% starfsmanna VORAR eru konur.“.