Þórey G. Guðmundsdóttir hefur hafið störf sem fjármálastjóri Bláa Lónsins. Kolbrún Kópsdóttir, sem sinnt hefur fjármálastjórn félagsins, verður áfram hjá Bláa Lóninu sem aðstoðarfjármálastjóri.

Fram kemur í tilkynningu frá Bláa Lóninu að Þórey starfaði hjá Straumi-Burðarás Fjárfestingabanka sem forstöðumaður fjármálasviðs frá 2004-2011.  Nú síðast starfaði hún hjá Samskipum þar sem hún bar ábyrgð á fjárhagsáætlunum, bókhaldi og uppgjörum félagsins og dótturfélaga þess á Íslandi. Þá starfaði hún sem sérfræðingur á fjármálasviði Íslandsbanka (áður FBA) frá 2000 til 2004 og hjá KPMG á tímabilinu 1995 til 1999.

Þórey er viðskiptafræðingur, Cand oecon frá Háskóla Íslands.  Hún er gift Leifi Eiríkssyni stöðvarstjóra Flugfélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli og eiga þau þrjú börn.