Þorgerður Þráinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar úr hópi rúmlega eitt hundrað umsækjenda. Mun hún hefja störf hjá Fríhöfninni á næstu vikum.

Þorgerður hefur víðtæka reynslu af stjórnun og smásölurekstri. Hún kemur til Fríhafnarinnar frá Lyfju hf. þar sem hún sat í framkvæmdastjórn í tíu ár, síðast sem forstöðumaður verslana- og markaðssviðs en þar á undan sem starfsmannastjóri. Áður hefur hún meðal annars starfað sem ráðgjafi hjá IBM Business Consulting Services í mannauðsmálum og rannsóknum.

Þorgerður er með BA og Cand.Psych gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt lokið PMD stjórnendanámi frá Opna háskólanum.

„Það eru spennandi verkefni framundan hjá Fríhöfninni. Ég hlakka til að takast á við þau og kynnast starfsfólkinu sem starfar hjá fyrirtækinu. Farþegum um Keflavíkurflugvöll hefur líka fjölgað mikið að undanförnu sem felur í sér bæði tækifæri og áskoranir fyrir Fríhöfnina“ segir Þorgerður.