Þórhildur Þorkelsdóttir hefur verið ráðin kynningarfulltrúi BHM og hefur þegar tekið til starfa. Greint er frá ráðningu hennar í fréttatilkynningu.

„Sem kynningarfulltrúi BHM mun Þórhildur hafa umsjón með vef og samfélagsmiðlum bandalagsins, annast samskipti við fjölmiðla, skipulagningu viðburða og fleiri verkefni á sviði kynningarmála,“ segir í tilkynningu.

Þórhildur hefur undanfarin ár starfað sem fréttamaður og vaktstjóri á RÚV auk þess að annast dagskrárgerð og þáttastjórnun í bæði útvarpi og sjónvarpi. Áður var hún fréttamaður á Stöð 2 og þar áður blaðamaður á fréttavefnum Vísi og Fréttablaðinu.

Hún hefur lokið BA-prófi í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri og stundaði nám í mannfræði við Háskóla Íslands. Hefur Þórhildur m.a. hlotið blaðamannaverðlaun árið 2020 fyrir vönduð fréttatengd viðtöl.

Hún tekur við starfinu af Óla Jóni Jónssyni sem verið hefur kynningarfulltrúi BHM undanfarin rúmlega fimm ár en ákvað nýlega að söðla um og hverfa til annarra starfa.