Arctic lögmenn er ný lögmannsstofa sem tekið hefur til starfa að Skeifunni 17 í Reykjavík. Með stofnun stofunnar hafa sameinast þrjár lögmannsstofur, Fullrétti lögfræðiþjónusta, RG lögmenn og HH lögfræðiþjónusta. Fram kemur í fréttatilkynningu að starfsmenn Arctic lögmanna eru Haukur Halldórsson hdl., Hjörtur Örn Eysteinsson hdl., Leifur Runólfsson hdl. og Sigurður Árnason hdl. og Arndís Þorvaldsdóttir lögfræðingur.

Arctic lögmenn leggja áherslu á að bjóða aðgengilega og vandaða þjónustu fyrir einstaklinga í skuldamálum, fjölskyldumálum, fasteignamálum og bótamálum. Þá býður stofan fyrirtækjum alla almenna þjónustu og ráðgjöf með sérstaka áherslu á að kostnaður viðskiptavina sé fyrirsjáanlegur.