Lögmannsstofan Deloitte Legal, sem var stofnuð í október síðastliðnum, hefur ráðið þau Jóhann Óla Eiðsson, Hafsteinn Gauta Ágústsson og Evu Rós Haraldsdóttur til sín. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Jóhann Óli Eiðsson kemur til Deloitte Legal frá Viðskiptablaðinu en þar hafði hann starfað frá vormánuðum 2019 sem blaðamaður og skrifaði einna helst um dómsmál, lögfræðitengd álitaefni og skattaréttarleg mál. Áður hafði hann verið frá árinu 2014 á fréttastofu 365, þá bæði á Vísi og Fréttablaðinu, en fjölmiðlaferillinn hófst skömmu eftir lok grunnskóla hjá Fótbolta.net. Jóhann Óli lauk BA-prófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2019 og mun ljúka meistaranámi við sama skóla núna í vor.

Sjá einnig: Tæknitækifæri í lögmennskunni

Eva Rós Haraldsdóttir kemur til Deloitte Legal frá lögmannsstofunni BBA Fjeldco en þar hafði hún starfað frá ágúst 2020. Áður hafði hún verið hjá KPMG og eru hennar helstu sérsvið skattaréttur, bæði innlendur og alþjóðlegur, og félagaréttur. Þá býr Eva Rós yfir ríkri þekkingu á sviði virðisaukaskatts og mun hún styðja við frekari uppbyggingu þeirrar þjónustulínu innan Deloitte Legal. Eva Rós lauk BA-prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2018 og lauk meistaranámi árið 2020.

Hafsteinn Gauti Ágústsson kemur til Deloitte Legal frá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel. Hjá ESA starfaði hann á samkeppnis- og ríkisaðstoðarsviði. Þá hefur hann einnig gegnt hlutverki aðstoðarkennara hjá Háskóla Íslands. Helstu sérsvið Hafsteins eru samkeppnisréttur, ríkisaðstoðarréttur og Evrópuréttur og mun hann styðja við uppbyggingu þeirrar þjónustulínu innan Deloitte Legal. Hafsteinn lauk BA-prófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2018 og lauk meistaranámi árið 2020.

Haraldur I. Birgisson, meðeigandi og framkvæmdastjóri Deloitte Legal:

„Ég er afskaplega ánægður að fá þau Jóhann Óla, Hafstein Gauta og Evu Rós til liðs við Deloitte Legal. Þau koma að borðinu með reynslu á réttarsviðum í takt við kjarnaáherslur okkar nýstofnuðu lögmannsstofu, sem lúta að því að veita hnitmiðaða ráðgjöf á þeim sviðum lögfræðinnar er varða rekstur, stefnu og uppbyggingu fyrirtækja."