Íslensk stjórnvöld hafa fest kaup á tíu olíuflutningabílum sem sendir verða til Úkraínu til að styðja við varnarbaráttu þeirra gegn innrásarher Rússlands.

Samkvæmt Utanríkisráðuneytinu nemur heildarkostnaður við kaupin á bílunum, umsýslu þeirra og afhendingu um 400.000 evrur, eða um sextíu milljónir króna.

„Olíuflutningar skipta miklu máli fyrir varnargetu og hreyfanleika úkraínska hersins andspænis rússnesku innrásaröflunum. Mikill hörgull er á olíubílum í Úkraínu sem flutt geta eldsneyti fyrir herinn og þarlend stjórnvöld hafa óskað eftir því að vinaþjóðir aðstoði við að útvega slíka bíla,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Íslensk stjórnvöld munu hafa brugðist hratt við þessari ósk Úkraínumanna og voru samningar gerðir við evrópskan birgi um kaup á tíu notuðum olíubílum. Fyrstu tveir bílarnir voru afhentir í síðustu viku en hinir verða afhentir á komandi vikum.

„Frá upphafi innrásarinnar höfum við lagt áherslu á að styðja stjórnvöld í Úkraínu í samræmi við óskir og þarf þeirra og getu okkar. Við útvegum ekki úkraínska hernum vopn eða önnur hergögn en við getum hins vegar lagt okkar af mörkum með því að leggja til olíuflutningabíla sem tilfinnanlegur skortur er á og verið fljót til þegar slík þörf skapast,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.