Lítið hefur borið á afbókunum hjá Iceland Express, þrátt fyrir eldgosið í Grímsvötnum. Áhrifin af gosinu eru því óveruleg og fjárhagslegt tjón lítið, miðað við að flug hefjist að nýju með kvöldinu. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til fjölmiðla.

„Ekkert hefur verið flogið síðan klukkan 9 í gærmorgun, en gangi veður- og öskuspár eftir mun flug komast í eðlilegt horf strax í fyrramálið. Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru beðnir að fylgjast vel með á heimasíðu félagsins icelandexpress.is og á netinu, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara,“ segir í tilkynningunni.