Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Tryggingamiðstöðinni hf. heimild til þess að kaupa Íslenska endurtryggingu hf.

Heimildin er veitt með vísan til laga um vátryggingastarfsemi.  Fyrir kaupin átti Tryggingamiðstöðin hf. 36.02% af heildarhlutafé Íslenskrar endurtryggingar hf. en á nú félagið í heild.

Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins.

Þar kemur einnig fram að starfsemi Íslenskrar endurtryggingar hf. hefur frá árinu 2000 einskorðast við að gera upp eldri endurtryggingarsamninga.

Í ljósi þessarar stöðu varð það nýverið að samkomulagi að helstu eigendur félagsins myndu gera tilboð í aðra eignarhluti í félaginu. Boði Tryggingamiðstöðvarinnar hf. var tekið.

Auk Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og tíu annarra aðila áttu Vátryggingafélag Íslands hf. og Sjóvá Almennar tryggingar hf. eignarhlut í félaginu.