Rétt fyrir jól skrifaði Landsvirkjun undir sambankalán á alþjóðlegum bankamarkaði. Lánið er fjölmynta veltilán til þriggja ára að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala eða 26,4 milljarða króna. Á vefsíðu Landsvirkjunar segir að heimilt sé að framlengja lánið tvisvar um eitt ár í senn og lánstími geti því að hámarki orðið fimm ár.

„Með lántökunni hefur Landsvirkjun lokið við endurnýjun samskonar láns sem samið var um árið 2011 með lokagjalddaga í desember 2016," segir vef fyrirtækisins. Lánið verður nýtt til almennrar fjárstýringar Landsvirkjunar og er veitt af viðskiptabönkum Landsvirkjunar. Umsjónaraðilar lánsins eru Barclays Bank PLC, Citigroup Global Markets Limited, Íslandsbanki hf. og Merchant Banking, Skandinaviska Enskilda Banken AB (publ).  Aðrir þátttakendur í láninu eru Arion Banki hf., ING Bank Belgium SA/NV og J.P. Morgan.