Alls sáu 6.500 manns á 2Guns, nýjustu mynd Baltasars, í bíó um helgina. Tekjur af sýningu myndarinnar á Íslandi námu 8,3 milljónum króna.

Samkvæmt upplýsingum frá Senu er þetta fjölmennasta frumsýning sumarsins og slær Baltasar þar með við myndum á borð við Man of Steel og Monsters University.

Einungis ein mynd hefur skilað meiri tekjum í kassan i ár en 2Guns. Það er IronMan 3 en hún var í þrívídd og þar af leiðandi var miðaverð hærra.

Alls hafa nú 12.000 manns séð 2Guns frá því sýningar hófust á miðvikudaginn.