Félag atvinnurekenda segir að tollasamningur Íslands og ESB muni ekki taka gildi fyrr en jafnvel um mitt næsta ár.

Segist félagið hafa aflað sér upplýsinga þess efnis frá stjórnvöldum, en þegar samningurinn var undirritaður fyrir tæpu ári kom fram í fréttatilkynningu stjórnvalda að vonir stæðu til að hann tæki gildi „í árslok 2016 eða byrjun árs 2017, að fenginni staðfestingu stofnana ESB og Íslands.“

Gengið út frá gildistöku um áramót

Segir félagið marga, til að mynda innflytjendur matvöru, hafa gengið út frá því að samningurinn gæti tekið gildi um áramótin og þá meðfylgjandi tollalækkanir.

„Nú virðist hins vegar ósennilegt að samningurinn taki gildi um áramót. Stefnt er að staðfestingu hans fyrir Íslands leyti á Alþingi á næstu vikum, en fullgildingarferlið hefur dregist hjá Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Langt ferli hjá ESB

„Framkvæmdastjórnin hefur aðeins nýlega gert tillögu til ráðherraráðs ESB um samþykkt samningsins. Samkvæmt þeim upplýsingum sem FA hefur aflað sér má gera ráð fyrir að ráðherraráðið taki sér fjórar til sex vikur til að staðfesta samninginn. Að því loknu þarf Evrópuþingið að fjalla um samninginn og að fenginni reynslu er talið að það geti tekið einhverja mánuði.“

Tollkvóti tekur strax gildi

Tollfrjálsir innflutningskvótar fyrir osta og kjötvörur voru stækkaðir með samningunum.

Jafnframt hefur formaður atvinnuveganefndar Alþingis hefur lýst því yfir að nefndin muni sjá til þess að 210 tonna aukinn tollkvóti fyrir upprunaverndaða osta frá ESB löndunum sem átti að taka gildi í áföngum muni allur taka gildi strax við gildistöku samningsins.

Slæmar fréttir fyrir neytendur

„Það eru vissulega slæmar fréttir fyrir neytendur að samningurinn taki ekki gildi strax um áramót, því að ýmsar matvörur munu lækka talsvert í verði strax við gildistökuna þar sem tollar af þeim verða lækkaðir eða felldir niður. Þar má nefna pitsur, bökur, fyllt pasta, súkkulaði, bökunarvörur, villibráð, franskar kartöflur og útiræktað grænmeti,“ segir Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA.

„Hér eru miklir hagsmunir í húfi fyrir neytendur. Innflytjendur matvöru þurfa jafnframt að fá góðar upplýsingar um hvenær líklegt er að tollasamningurinn geti tekið gildi, þannig að þeir geti hagað skipulagi innkaupa og birgðahaldi eftir því. Við hvetjum stjórnvöld því til þess annars vegar að þrýsta á að staðfestingarferli tollasamningsins hjá Evrópusambandinu gangi sem hraðast fyrir sig og jafnframt að veita innflytjendum og samtökum þeirra góðar upplýsingar um ganginn í ferlinu.“