Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq iceland hækkaði um 0,41% í viðskiptum dagsins í dag. Gengi bréfa Sjóvár hækkaði um 2,0%, VÍS um 1,42% og Marels um 1,31%. Gengi bréfa Reita lækkaði um 0,43%, en einnig lækkaði gengi bréfa Össurar um 2,91% og Nýherja um 3,28%, en í báðum tilvikum í litlum viðskiptum. Velta á hlutabréfamarkaði nam 1.588 milljónum króna og var veltan mest með bréf Icelandair Group, eða 689 milljónir króna, en gengi bréfa félagsins breyttist þó ekki í dag.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,03% í dag í 2,1 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,01%í 0,5 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,06% í 1,6 milljarða viðskiptum.

Engin velta var með bréf í vísitölu fyrirtækjaskuldabréfa í dag.