Tór Einarsson var kjörinn forseti og Gylfi Zoëga varaforseti í hagfræðideild Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands á dögunum. Kjörið var fyrir tímabilið frá 1. júlí 2012 til 30. júní 2014.

Tór, sem hefur þjóðhagfræði og peningamálahagfræði sem sérsvið, tekur við af Þórólfi Matthíassyni sem forseti hagfræðideildarinnar.