Rekstur Lýsingar hf., dótturfélags Vátryggingafélags Íslands, gekk mjög vel á árinu 2005 og var hagnaður eftir skatta 689,2 milljónir króna. Útlán jukust um 23,4% og voru 37.033 milljónir kr. í árslok. Viðskiptamönnum, fyrirtækjum og einstaklingum, fjölgaði verulega á árinu segir í ársuppgjöri félagsins sem sent hefur verið inn í Kauphöllina.

Þar kemur fram að staða vanskila mjög góð og afskrifaðar tapaðar kröfur 0,47 % af útlánum í upphafi árs en meðaltal sl. 5 ára er 0,47%. Heildarniðurstaða efnahagsreiknings var í árslok 38.399 m.kr.

Eigið fé Lýsingar hf. var í árslok 3.602 m.kr. og víkjandi skuldir 708,3 m.kr. Eiginfjárhlutfall reiknað skv. lögum er 11,4%.

"Nú þegar litið er fram á veg í efnahagsmálum er enn bjart framundan. Sóknarfæri eru til staðar og Lýsing hf. vel í stakk búið að nýta þau tækifæri, með trausta fjárhagsstöðu, sterkan bakhjarl, frábært starfsfólk og gott orðspor. Bendir því ekkert til annars en að árið 2006 geti orðið félaginu farsælt," segir í tilkynningu félagsins.

Fjöldi starfsmanna var 53 í árslok. Í stjórn Lýsingar hf. eru nú Finnur Ingólfsson, Benedikt Sigurðsson, Sigurbjörn Gunnarsson, Ásgeir Baldurs og Hermann Hansson. Framkvæmdastjóri er Ólafur Helgi Ólafsson.

Lýsing hf. er dótturfélag Vátryggingafélags Íslands hf. en Kaupþing banki hf. seldi allt sitt hlutafé í félaginu til Vátryggingafélags Íslands hf. á árinu. Félagið hefur að markmiði að þjóna íslensku atvinnulífi á traustan og faglegan hátt með því að bjóða eignarleigusamninga um atvinnutæki og húsnæði, auk lána til tækjakaupa og verkábyrgðir. Einnig býður félagið fjármögnun einkabíla fyrir einstaklinga með bílasamningum og bílalánum Lýsingar hf. Félagið hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161 / 2002.

Dótturfélag Lýsingar hf. Eik fasteignafélag hf. var selt til Kaupþings banka hf. á árinu.