Túrbína sem notuð verður við Reykjanesvirkjun var landað í gær. Túrbínan var flutt til landsins í nokkrum hlutum og verður sett saman við Reykjanesvirkjun. Tækjabúnaðurinn er frá fyrirtækinu Fuji í Japan og er engin smásmíði, hverflarnir og rafallinn eru yfir 100 tonn að þyngd hvert fyrir sig og verður flutt á sérstökum þungaflutningabíl upp að byggingu Reykjanesvirkjunar.

HS hf hefur áður skipt við Fuji og er með vélar frá þeim í Svartsengi þar sem þær hafa reynst vel.

Framkvæmdir við virkjunina ganga vel og stendur enn til að setja Reykjanesvirkjun í gang þann 1. maí á næsta ári eins og gert var ráð fyrir í upphafi.